Ferðaþjónustan á Hofi  býður fólki að taka þátt í  

Göngum og réttum haustið 2007.

 

 

Undirfellsrétt er föstudaginn 7. september, og laugardaginn 8.

 

Tökum við gestum til þátttöku í gangnaævintýrinu frá og með miðvikudagskvöldi 5. sept.

 

Þá yrði riðið á móti safninu á Grímstunguheiði á fimmtudag, og smalað með niður að Grímstungu. Komið þar niður að kvöldi.

 

Á föstudag yrði smalað með í Víðidalsfjall austanverðu, farið frá Haukagili klukkan 07.00, og komið með safninu niður að Undirfellsrétt síðdegis.  Líka er hægt að ríða með safninu frá Grímstungu til réttar  að morgni, og taka þátt í réttarstörfum frá hádegi.

 

Á laugardag yrði dregið í Undirfellsrétt fram að hádegi, og síðan er réttarball í Víðihlíð  um kvöldið.

 

Hægt er sleppa sumum dögunum, og einnig er fólk velkomið að koma í réttir, án þess að taka þátt í smalamennskum, eða réttarstörfum.

 

Verð fyrir smalahest,  fullt fæði og gistingu er 12.000- kr. á dag, en 10.000- ef fólk kemur með eigin hest, eða tekur þátt, án þess að fara á hestbak.

 

Einnig bjóðum við upp á hefðbundna gistingu með morgunmat fyrir þá sem vilja vera á eigin vegum.  Verðið er 9.000 fyrir 2ja manna herbergi með baði og morgunmat,  en 7.000 fyrir samsvarandi herbergi án baðs.

 

Our adress:

Jón & Eline

Hofi

541 Blönduós

Iceland

tel. 00 354 452 4077

 

 For more info:

hof@simnet.is

 

 

 

Hit Counter

 

hof@simnet.is                     www.hof-is.com